Foreldrafélög eru nú lögbundin skv. 9. gr. laga um grunnskóla. Við hvern grunnskóla skal starfa foreldrafélag. Það er á ábyrgð skólastjóra að sjá til stofnun þess og að félagið fái aðstoð eftir þörfum. Foreldrafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð. Hlutverk foreldrafélagsins er m.a. eftirfarandi:
• Að styðja við skólastarfið
• Stuðla að velferð nemenda skólans
• Efla tengsl heimilis og skóla
• Hvetja til virkrar þátttöku foreldra í skólastarfi
• Hagsmunagæsla, aðhald og eftirlit með skólastarfinu
Stjórn foreldrafélags Holtaskóla skólaárið 2024 - 2025
Formaður:
Bjarney Rut Jensdóttir - hafa samband
Gjaldkeri:
Einar Hallsson
Meðstjórnendur:
Aníta Rós Sigurðardóttir
Halldóra Ríkey Júlíusdóttir
Jenný Þórkatla Magnúsdóttir
Sigrún Gyða Matthíasdóttir
Aðalfundur foreldrafélags Holtaskóla var haldinn 26. september og hér má finna fundargerð fundarins.