Árshátíð Holtaskóla

Árshátíð Holtaskóla verður haldin föstudaginn 28. mars. Hefðbundin kennsla fellur niður þennan dag og frístund er lokuð. Nemendur eiga að mæta í sínar heimastofur kl. 10:30 nema umsjónarkennarar ákveði annað.

Skemmtidagskrá hefst kl. 11:00 í íþróttahúsinu við Sunnubraut og verða þar frátekin sæti fyrir hvern árgang og gestir fá sæti í stúku á efri hæð.  Foreldrar/forráðamenn, eru hvattir til að mæta. Að lokinni árshátíð verður boðið upp á skúffuköku, safa og kaffi í B-sal og eru börn þá í umsjá foreldra/forráðamanna sinna að atriðum loknum.

 Við vonumst til að eiga skemmtilega stund saman og minnum nemendur á að mæta stundvíslega.