- Skólinn
- Foreldrar
- Stoðþjónusta
- Hagnýtt
- Nám & kennsla
- Starfsfólk
Litla upplestrarkeppnin var haldin í Bergi í dag. Keppnin er haldin í fimmtánda sinn og er afkvæmi Stóru upplestrarkeppninnar. Markmið keppninnar eru að verða betri í lestri í dag en í gær og það var ljóst að því markmiði var náð hjá nemendum 4. bekkjar og gott betur.
Nemendur byrjuðu á að flytja Guttavísur við undirleik Hörpu Jóhannsdóttur kennara. Nemendur stigu þá á stokk eftir ákveðnu skipulagi, enda hver með sitt hlutverk í upplestrinum. Fjórir nemendur 4. bekkjar fluttu tónlist fyrir áhorfendur og lék Inga Sif á píanó lagið Musette, Sigurður Dominik spilaði á klarinett lagið Á Sprengisandi, Piotr spilaði lagið Sicilan á gíatar og að lokum spilaði hún Elísa Hanna á píanó franskt lag. Þau Sóley Rún Arnardóttir og Þórbergur Eriksson, nemendur 7. bekkjar og fulltrúar Holtaskóla í Stóru upplestrarkeppninni, fluttu fyrir áhorfendur ljóðin Hafið mitt og Myrkrarherbergið. Það var öllum áhorfendum ljóst að á baki lá mikill metnaður, undirbúningur og æfingar.
Við óskum nemendum og kennurum til hamingju með einstaklega frábæra frammistöðu.
Hér má sjá myndband af Guttavísum og andheitum.
Við Sunnubraut | 230 Reykjanesbæ Sími á skrifstofu: 420-3500 Netfang: holtaskoli@holtaskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 420 3500 / holtaskoli@holtaskoli.is