Ágætu foreldrar og nemendur Holtaskóla
Menntamálastofnun hefur nú lokið ytra mati á starfi skólans sem unnið er fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga. Niðurstöður birtast í opinberri skýrslu sem birt er á heimasíðu Menntamálastofnunar og má finna hér.
Matinu er fyrst og fremst ætlað til að styðja skóla við að auka gæði náms og skólastarfs ásamt því að stuðla að umbótum. Tilgangurinn er einnig að afla upplýsinga fyrir fræðsluyfirvöld, starfsfólk skóla, foreldra og nemendur um skólastarfið, árangur þess og þróun ásamt því að tryggja að starfsemi skóla sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnámskrá grunnskóla.
Við Sunnubraut | 230 Reykjanesbæ Sími á skrifstofu: 420-3500 Netfang: holtaskoli@holtaskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 420 3500 / holtaskoli@holtaskoli.is