Miðvikudaginn 13. nóvember verður skertur nemendadagur í Holtaskóla. Þennan dag verður leikjadagur í Reykjaneshöllinni og er skipulagið eftirfarandi:
6.-10. bekkir eiga að mæta í Reykjaneshöllina. Dagskrá hefst kl. 08:30 og er lokið um kl. 09:30.
1.-5. bekkir eiga að mæta á Malarvöllinn kl. 10:00 en þau fara síðan yfir í Reykjaneshöll með starfsfólki. Dagskrá lýkur um kl. 11:00 og ganga nemendur þá aftur yfir á Malarvöllinn. Frístund hefst að lokinni dagskrá í Reykjaneshöll.
Starfsdagar verða fimmtudaginn 14. nóvember og föstudaginn 15. nóvember. Þessa daga verða kennarar og starfsfólk á námskeiði um leiðsagnarnámið sem við erum að innleiða í skólanum. Einnig verður starfsdagur fimmtudaginn 21. nóvember.
Frístund er lokuð á starfsdögum.
Við Sunnubraut | 230 Reykjanesbæ Sími á skrifstofu: 420-3500 Netfang: holtaskoli@holtaskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 420 3500 / holtaskoli@holtaskoli.is