Skipulag skólastarfs frá fimmtudeginum 15. apríl er með eftirfarandi hætti. Skipulagið byggir á reglugerð um takmörkun á skólastarfi sem gildir til og með 5. maí 2021.
Í grunninn byggist skipulagið á eftirfarandi þáttum með einstaka undantekningum:
- Nemendur í 1.–10. bekk fá kennslu samkvæmt stundaskrá. En samkvæmt reglugerð eru þeir undanþegnir 1 metra nálægðartakmörkun sem og grímuskyldu. Ekki skulu vera fleiri en 50 nemendur í 1.–10. bekk í hverju rými. Blöndun milli hópa innan skóla er heimil.
- 20 starfsmenn mega vera saman í rými og þeim er heimilt að fara á milli hópa. Sé starfsfólki ekki unnt að tryggja 1 metra nálægðartakmörkun sín á milli og gagnvart nemendum ber þeim að nota andlitsgrímur. Sömu reglur gilda um starfsfólk skólaþjónustu og tónlistarskóla.
- Frístundaheimilin verða opin til kl. 16:15.
- Í sameiginlegum rýmum skóla, svo sem í matsal, við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að starfsfólk notist við andlitsgrímu.
- Viðburðir tengdir starfi eða félagslífi grunnskóla, svo sem fyrirlestrar, upplestrarkeppnir o.fl., eru óheimilar fyrir aðra en nemendur og starfsfólk.
- Foreldrar og aðstandendur skulu ekki koma inn í skólabyggingar nema nauðsyn beri til og skulu þá nota andlitsgrímur.
- Aðrir en starfsmenn sem koma inn í grunnskóla, svo sem vegna vöruflutninga skulu bera andlitsgrímur og gæta sóttvarnaráðstafana.
Við minnum á að nemendur með flensueinkenni farsóttarinnar eiga alls ekki að koma í skólann. Við hvetjum alla til þess að gæta að persónulegum smitvörnum, minnum á mikilvægi handþvottar og notkun spritts. Við erum í þessu saman.