Skólasetning Holtaskóla

Skólasetning Holtaskóla fer fram föstudaginn 23. ágúst og er dagurinn skertur nemendadagur. Umsjónarkennarar taka á móti nemendum og hvetjum við alla foreldra/forráðamenn til að mæta með börnum sínum en kennarar munu fara yfir mikilvæga þætti í skólastarfinu. Stundatöflur og bekkjarlistar verða aðgengilegir í Mentor frá og með fimmtudeginum 22. ágúst.

Skólasetningin fer að þessu sinni fram á Malarvellinum á eftirfarandi tíma:

Kl. 09:00 - 8.-10. bekkur

Kl. 10:00 – 5.-7. bekkur

Kl. 11:00 – 1.-4. bekkur

Að skólasetningu lokinni er frístund fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 26. ágúst kl. 8:10. Mælst er til þess að nemendur mæti ekki fyrr en kl. 08:00 þegar starfsfólk mætir til vinnu.

Þetta skólaár er hádegismatur gjaldfrjáls í skólanum. Skrá þarf nemendur í mat og berast nánari leiðbeiningar frá Skólamat varðandi það. Einnig minnum við á mikilvægi þess að borða morgunmat heima áður en haldið er inn í skóladaginn og koma með hollt og gott nesti, t.d. ávexti, grænmeti eða brauð með hollu áleggi ásamt vatni að drekka.

 

Við hlökkum til samstarfsins skólaárið 2024-2025

Starfsfólk Holtaskóla